Nýtt
202495
Fá eintök eftir

Bassermann-Jordan Forster Jesuitengarten Riesling 75 CL

7.098 kr

Lífrænt
  Lífrænt  
Bíódínamík
  Bíódínamík  
Korktappi
  Korktappi  
Má geyma
  Má geyma  
Nýtt
202495
Fá eintök eftir

Bassermann-Jordan Forster Jesuitengarten Riesling 75 CL

7.098 kr

Vörulýsing

Bassermann-Jordan var stofnað árið 1718 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allt til ársins 2002, þá var það keypt af Achim Niederberger. Staðsett í bænum Deidesheim og 50 hektara af víngörðum á flestum þekktum svæðum eins og Deidesheimer Kieselberg, Forster Ungeheuer og Forster Jesuitengarten og Forster Pechstein. Frá aldarmótum hefur vistfræðileg og lífeld ræktun ( Biodynamic ) verið stunduð, en það hefur aðeins nýlega sem vottunin hefur birst á flöskunum.

Á flöskumiðanum er mynd af svokallaðri „bacchans“ (latína), áhanganda vínguðsins Bakkusar sem heldur á blómvendi í annarri hendi og vínglasi í hinni. Myndin sýnir hana hylla brjóstmynd af keisaranum Próbusi, en brjóstmyndin stendur á skreyttum stalli með áletruninni PROBUS IMP (Próbus keisari). Í bakgrunninum má sjá vínekrur Palatíum og Rínardalsins. Rínardalurinn var á sínum tíma hluti Rómarveldis og var Próbus ábyrgur fyrir útbreiðslu vínræktarmenningu Rómverja um þau héruð Evrópu þar sem Rómverjar réðu ríkjum. Flöskumiðinn er virðingarvottur til Próbusar fyrir framlag hans til vínmenningar og þróunar vínræktar. 

Það getur oft flægst fyrir fólki að lesa á flöskumiðum af þýskum vínum, en þetta vín er svokallað Gross Lage sem þýðir að það kemur frá Grand Cru víngarðinum Jesuitengarten frá þorpinu Forst, svo er alltaf bætt við -er við bæjarnafnið eins og hér Forster.

Jesuitengarten er staðsett í útjaðri Forst, í næsta nágrenni við Kirkchenstuck og Ungeheuer, og er einn af bestu víngörðum Pfalz vegna afar mikils steinefna innihalds, sandleir með kalkgrýti og basalt veðrun. Staðsetningin er fræg fyrir fín og glæsileg vín með mikinn margbreytileika. Nafnið nær aftur til eigna fyrrum jesúítaklaustrsins í Neustadt an der Weinstraße. Árið 1793 keypti Jordan fjölskyldan víngarðinn.

Vínið er látið þroskast í tunnum og stáltönkum með geri og berjahratinu. Í nefinu er þessi Riesling í upphafi svalur og hlédrægur með fínu kryddjurta- og sítrusilmi. Með smá lofti verða ávaxtaríku þættirnir mikilvægir og ilmur af steinávöxtum og framandi ávöxtum sífellt áberandi. Örlítið ger í bragði með fínu tanníni og sýrubyggingu. Vín með mikinn styrk sem mun aðeins sýna fullan möguleika eftir nokkur ár og þangað til þarfnast smá þolinmæði.

Þrúgur

Riesling
Þýskaland
Þýskaland
Bassermann-Jordan

RZ Specification Groups

Árgangur

2020

Magn

75cl

Styrkur

12.5%

Bragð

Meðalfyllt

Sætleiki

Þurrt

Hérað/Svæði

Framleiðandi

Lífrænt
  Lífrænt  
Bíódínamík
  Bíódínamík  
Korktappi
  Korktappi  
Má geyma
  Má geyma  
Vörulýsing