202456
Fá eintök eftir

Bassermann-Jordan Forster Pechstein Riesling 75 CL

7.199 kr

Lífrænt
  Lífrænt  
Korktappi

Vörulýsing

Bassermann-Jordan var stofnað árið 1718 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allt til ársins 2002, þá var það keypt af Achim Niederberger. Staðsett í bænum Deidesheim og 50 hektara af víngörðum á flestum þekktum svæðum eins og Deidesheimer Kieselberg, Forster Ungeheuer og Forster Jesuitengarten og Forster Pechstein. Frá aldarmótum hefur vistfræðileg og lífeld ræktun ( Biodynamic ) verið stunduð, en það hefur aðeins nýlega sem vottunin hefur birst á flöskunum.

Á flöskumiðanum er mynd af svokallaðri „bacchans“ (latína), áhanganda vínguðsins Bakkusar sem heldur á blómvendi í annarri hendi og vínglasi í hinni. Myndin sýnir hana hylla brjóstmynd af keisaranum Próbusi, en brjóstmyndin stendur á skreyttum stalli með áletruninni PROBUS IMP (Próbus keisari). Í bakgrunninum má sjá vínekrur Palatíum og Rínardalsins. Rínardalurinn var á sínum tíma hluti Rómarveldis og var Próbus ábyrgur fyrir útbreiðslu vínræktarmenningu Rómverja um þau héruð Evrópu þar sem Rómverjar réðu ríkjum. Flöskumiðinn er virðingarvottur til Próbusar fyrir framlag hans til vínmenningar og þróunar vínræktar. 

Það getur oft flægst fyrir fólki að lesa á flöskumiðum af þýskum vínum, en þetta vín er svokallað Gross Lage sem þýðir að það kemur frá Grand Cru víngarðinum Pechstein frá þorpinu Forst, svo er alltaf bætt við -er við bæjarnafnið eins og hér Forster. Pechstein er samtals 15,3 ha en 0,75 ha eru í eigu Bassermann Jordan og Pechstein dregur nafnið sitt af svörtum Basalt steini ( eldgos uppruni ) sem finna má í jarðveginum ásamt kalksteini og sand leirsteini.

Þetta vín er sönn paradís fyrir Riesling áhugamenn, brakandi ferskt, lifandi, ríkt og arómatískt. Mjög míneralískt í nefi, gulir ávextir og smá eik, fínleg, þurr og ferskt sýra og jafnvel smá salt frá steinefni lifa vel í munni.

Þrúgur

Riesling
Þýskaland
Þýskaland
Bassermann-Jordan

RZ Specification Groups

Árgangur

2020

Magn

75cl

Styrkur

12.5%

Bragð

Meðalfyllt

Sætleiki

Þurrt

Hérað/Svæði

Framleiðandi